Undur daglegs lífs
|
Rétt í þessu var ég að borða Kiwi með lítilli hvítri plastskeið. Ég horfði á grænan safann leka í skeiðina og ákvað að prófa að smakka bara safann. Er ég setti skeiðina upp í mig og lét hann leka um bragðlauka mína áttaði ég mig á einum undarlegum hlut. Fanta Green Apple bragðast ekkert eins og grænt epli, heldur nákvæmlega eins og Kiwi. Ég er ósáttur við þennan blekkingarvef sem The Coca Cola Company er búinn að spinna utan um vörur sínar í tilraun sinni til að lauma Kiwi inn á heimili landsmanna, sem og annarra heimsbúa.
Kiwi á að vera loðið og eistalaga! Ekki grænn vökvi dulbúinn sem epli! Vér mótmælum allir! (Ekki satt?) Lágmarkskurteisi við Kiwi ávöxtinn að kalla þetta Fanta Kiwi.
|
Rannsakarinn skrifaði kl. 15:09
mánudaginn 21. mars 2005
17 innlegg
|
Was ist los?
|
Löööngu tímabær færsla. Ok... here's the lowdown:
Ég er að vinna hjá Hive, eins og flest ykkar vita sennilega. Lífið þar gengur sinn vanagang.
Ég sótti um í tónlistarskóla í Bretlandi fyrir tæpum tveimur vikum og bíð svars frá honum. Þetta er Academy of Contemporary Music, fyrir þá sem hafa áhuga. Ég er mjög spenntur fyrir þessum skóla og vona að ég komist inn. Ég sótti um í eins árs gítarnám fyrir þá sem hafa ekki formlega tónlistarmenntun.
Annað... hvað annað.... eeehhh.... Já! Ég er skuldlaus... Heyr heyr fyrir því. Kannski Benedikt bróðir minn sýni mér völd sín sem nýskipaður flugstjóri og bjóði mér til New York? Aldrei að vita! Hann hefur nú ætlað að gera það í nokkur ár! :)
Ummm..... já! Þessi færsla er nota bene undir áhrifum frá Eddie Izzard, en ég fór einmitt á uppistandið með honum um daginn. Hann er með mikinn svona "uhhh... hvað nú..." stíl. Ég átta mig á því að þetta getur verið þreytandi til lengdar í skrifum svo þetta er ekki komið til að vera. Uppistandið hans var þó snilld með meiru.
Hefur einhver ykkar horft á Black Books? Ég er nokkuð viss um að þetta eru með skemmtilegri þáttum sem hafa verið í sjónvarpi. Þeir skipa sér sess með meistaraþáttum sem "The Office" og "Scrubs". Ekki amalegt það. Mæli með því að allir sem geti kíki á þá. Það verður enginn svikinn af því.
Nú þegar ég er orðinn skuldlaus finn ég aftur til þarfarinnar að steypa mér í skuldir. Mig langar gríðarlega mikið að fara, eins og áður sagði, til útlanda, t.d. New York. Þetta er þó ekki einungis skorðað við Bandaríkin, þar sem ég væri mjög svo til í að kíkja þó ekki væri nema í helgarferð til Bretlands. Það er bara svo þreytandi að vera alltaf í sama umhverfi, þar sem er sífellt vont veður. Gaman að fara í nýtt umhverfi þar sem er sífellt vont veður :-)
Allavega, læt þetta duga í bili... kannski ég fari að skrifa hér oftar í framtíðinni. Annars er þetta algjörlega búið að missa tilgang sinn.
|
Öddi skrifaði kl. 23:40
fimmtudaginn 17. mars 2005
5 innlegg
|
Draumar
|
Það er magnað hvernig draumar geta haft mikil áhrif á líðan manns. Upp á síðkastið er ég mjög oft búinn að lenda í því að dreyma drauma sem hafa töluverð áhrif á mig þegar ég vaki. Þeir koma mér til að hugsa um hitt og þetta. Það sem mér finnst svo skrítið er þó hvað maður púslar alltaf hinu og þessu saman í minningunni um drauminn, þó það eigi kannski ekkert að hanga saman. Þ.e. draumar eru oft mjög sundurlausir og það er ekkert mikið vit í atburðarásinni. Samt tekst manni oft að segja frá þeim í grunnatriðum. Ég er viss um að sú frásögn er nokkuð langt frá upphaflegu atburðarásinni.
Stundum væri gaman að geta bara stundað meðvitaða drauma. Ætli við myndum ekki fá nýja tegund fíkla þá; svefnfíkla. Þeir eru sjúkir í þennan draumaheim og vilja ekkert með raunveruleikann að gera. Hafa ekki allir lent í því að dreyma eitthvað svo skemmtilegt að þeir ákveða að halda áfram að sofa?
|
Öddi skrifaði kl. 09:43
laugardaginn 5. mars 2005
5 innlegg
|
Þoka
|
|
Hvað finnst fólki um svona þoku? Er þetta töff? Eruði að höndla rakann?
|
Öddi skrifaði kl. 17:19
þriðjudaginn 22. febrúar 2005
6 innlegg
|
Aldurinn segir snemma til sín
|
Nú þegar maður er kominn á þrítugsaldurinn er maður farinn að finna fyrir Manninum með ljáinn læðupokast við næsta horn. Reyndar er alveg jafnlíklegt að þetta sem ég er að tala um sé einfaldlega afleiðing vítamínskorts og heilsuleysis, en ég hef jú vart hreyft á mér rassinn síðan ég kom heim frá Þýskalandi.
Nú kemur varla upp sú kvöldstund að ég verði ekki sjúklega þreyttur í kringum hálfníuleytið. Núna, til dæmis, er ég í vinnunni, og mig hreinlega svíður í augun af þreytu. Ég þakka hreinlega fyrir að geta skrifað blindandi. Þó fór ég ekki á fætur fyrr en klukkan níu í morgun eftir um 11 tíma svefn. Ég sofnaði nefnilega upp úr hálf níu í gærkvöldi, vaknaði síðan um 7, vakti í klukkutíma, var svo þreyttur að ég lagði mig aftur í hálftíma. Með öllum vaknipásum hafa þetta sennilega verið um 11 tímar. Það er mjög mikið fyrir mig. Ég sef vanalega ekki í nema um 6-8 tíma, og get þá ekki sofið meira. Nú hef ég verið svona þreyttur ítrekað í um tvær vikur. Þetta er farið að vera til vandræða, því ég ætlaði t.a.m. í gær að hitta frændsystkini mín áður en þau fara aftur til úgglanda. Þetta hlýtur að vera ellin. Ég neita að trúa því að hreyfing og heilsa valdi svona miklu. Það er gagnstætt mínum trúarbrögðum.
E.t.v. mun ég þó prófa að hreyfa á mér rassinn, ef þreytan eykst. Það verður þó notað sem örþrifaráð. Ég segi það og skrifa!
|
Öddi skrifaði kl. 20:55
mánudaginn 14. febrúar 2005
5 innlegg
|
Fahrenhype 9/11
|
|
Þessi mynd kom mér á óvart. Ég bjóst við algjörum vonbrigðum, en ég fékk í raun meira. Henni tókst ekki einusinni að gera vel það sem hún "allegedly" setti sér fyrir, þ.e. fletta ofan af Michael Moore. Hún reyndar virtist snúast frekar um pólitískan áróður fyrir kosningar, en það heppnaðist alls ekki heldur, að mínu mati. Höfðaði aðallega til þeirra sem ég fordæmi býst ég við. Meira síðar.
|
Öddi skrifaði kl. 00:14
fimmtudaginn 10. febrúar 2005
5 innlegg
|
Jájájá! Express in the house!
|
Iceland Express bætir við áfangastað á morgun. Þeir munu fljúga til Frankfurt þrisvar í viku fyrir 7000 krónur aðra leið án skatta. Þvílík endemis snilld. Ég fagna þessu framtaki! Vonandi mun þetta fyrirtæki halda áfram að vaxa og dafna svo Icelandair hætti að nauðga okkur. Mér finnst bara illa gert t.d. að rukka meira fyrir þá sem fljúga fram og til baka til áfangastaðar í Bandaríkjunum heldur en það kostar að fara frá sama stað í Bandaríkjunum fram og til baka til Íslands. Næstum því tvöfalt meira. Skamm skamm. Ég vildi miklu frekar að þeir fækkuðu flugum til að þeir gætu lækkað verðið, eða slepptu mat eða eitthvað. Mér finnst skammarlegt að það skipti máli í hvora áttina þú ert að fara.
Annars er ekkert að frétta. Ég sit hér á stuttermabol í táfýlusokkum svarandi í símann og líkar bara ágætlega. Það er orðið frekar rólegt núna, m.v. síðustu 2 vikur allavega. Ég kvarta ekki yfir því. Þá get ég dúllað mér við þá hluti á netinu sem ég myndi öðrum kosti dúlla mér við heima. Ekki amalegt það.
Ég hafði hug á því að skipta um blogkerfi og fara í sama kerfi og Tinna systir er farin að nota, en ég er ekki enn viss. Kannski ég geri það á endanum, en ég nenni bara ekki að fást við það strax. Það er leiðinleg handavinna. Boosjaka. Best að hætta þessu svo ég geti svarað í símann.
|
Öddi skrifaði kl. 15:00
miðvikudaginn 2. febrúar 2005
2 innlegg
|
Gleði gleði!
|
Það er ekki frost lengur! Það er rigning! Tilbiðjum rigninguna!
Ég sver það, ég er farinn að tilbiðja rigninguna sem ég bölva statt og stöðugt. Maður bölvar alltaf því sem hrjáir mann býst ég við. Rigning er betri en snjór, og sól er betri en rigning. Svona eins og fótalaus maður myndi gjarnan vilja vera tognaður á meðan sá tognaði bölvar því að vera ekki alveg frískur.
Allavega, MEGI HIMNARNIR OPNAST!
|
Öddi skrifaði kl. 17:43
mánudaginn 24. janúar 2005
2 innlegg
|
Loksins!
|
Loksins, ó loksins, fékk ég að sjá skopmyndina sem var teiknuð fyrir Tirnuna (árbókina í MS).
Teiknarinn fékk eitthvað geiðveikikast og fór til útlanda í nokkra mánuði án þess að tala við neinn, og síðan beint á klepp þegar hann kom aftur. Nú fer ég að fá bókina sennilega. Þetta er bara skönnuð mynd sem ég fékk senda í tölvupósti.
Hún er hér
|
Öddi skrifaði kl. 23:55
sunnudaginn 9. janúar 2005
9 innlegg
|
Yaså
|
|
Það eina sem tekur minni leti í bloggi fram er leti ykkar sem lesið að commenta! Ég hef aldrei vitað annað eins.
|
Öddi skrifaði kl. 13:37
föstudaginn 7. janúar 2005
7 innlegg
|
|
|