Undur daglegs lífs
|
Rétt í þessu var ég að borða Kiwi með lítilli hvítri plastskeið. Ég horfði á grænan safann leka í skeiðina og ákvað að prófa að smakka bara safann. Er ég setti skeiðina upp í mig og lét hann leka um bragðlauka mína áttaði ég mig á einum undarlegum hlut. Fanta Green Apple bragðast ekkert eins og grænt epli, heldur nákvæmlega eins og Kiwi. Ég er ósáttur við þennan blekkingarvef sem The Coca Cola Company er búinn að spinna utan um vörur sínar í tilraun sinni til að lauma Kiwi inn á heimili landsmanna, sem og annarra heimsbúa.
Kiwi á að vera loðið og eistalaga! Ekki grænn vökvi dulbúinn sem epli! Vér mótmælum allir! (Ekki satt?) Lágmarkskurteisi við Kiwi ávöxtinn að kalla þetta Fanta Kiwi.
|
Rannsakarinn skrifaði kl. 15:09
mánudaginn 21. mars 2005
permanent url
aftur á aðalsíðu
|
Umræða
|
I can't believe you deemed the Fanta Kiwi anecdote acceptable blog subject matter!
|
Samanþa skrifaði kl. 21:17
mánudaginn 21. mars 2005
|
|
Fanta Kiwi actually means death to all English people in Icelandic :)
|
Öddi skrifaði kl. 22:52
mánudaginn 21. mars 2005
|
Bandaríkjamenn hafa aldrei sætt sig við Kiwi-ávöxtinn enda hét hann fyrst eftir upprunaslóðum sínum, Kína. Þar bjuggu kommúnistar. Bandaríkjamenn tóku því illa þegar innflutningur á þessum kínverska ávexti hófst og neyddust innflytjendur til að finna honum nýtt nafn - Kiwi eins og fuglinn - en nýjan uppruna var að sjálfsögðu ekki að finna.
Coca Cola er auðsjáanlega síðasta fyrirtækið sem vill láta bendla sig við kommúnisma, jafnvel þó margir líti svo á að hinn nýi rauði her sé einmitt glundurlepjandi ungviðið á Vesturlöndum með beinþynningu og koffínfíkn.
Þetta eru svona... háskólapælingar.
|
Frikki skrifaði kl. 13:38
þriðjudaginn 22. mars 2005
|
Í Gettu Betur um daginn var einmitt vísbendingaspurning um kiwi-ávöxtinn. Ef mig misminnir ekki þá var hann fyrst kallaður Chinese Gooseberry, síðan Melonette og loks Kiwifruit.
Mér finnst samt gott að heyra að þú borðir kiwi með skeið, Öddi. Því þó ég hafi aldrei séð það með berum augum, hef ég heyrt um fólk sem borðar kiwi með hýðinu.
|
Jói skrifaði kl. 16:34
þriðjudaginn 22. mars 2005
|
|
Já, ég hef prófað það. Það var svo sem ekki slæmt á bragðið, en það fór illa með hugann.
|
Öddi skrifaði kl. 17:59
þriðjudaginn 22. mars 2005
|
|
Ég hef séð einhvern borða kiwi með hýðinu en ég man ekki hver það var. Ég get mér þess til að það sé vegna þess að það var svo hræðileg lífsreynsla að heilinn hafi einfaldlega reynt að þurrka hana út.
|
Frikki skrifaði kl. 11:14
miðvikudaginn 23. mars 2005
|
|
Ég borða alltaf kiwi MEÐ hýðinu. Ég finn engan mun... maður finnur ekki að hýðið sé loðið... prófið þið að smakka þetta ... það er ekki eins ógeðslegt og þið haldið :)
|
Birgúrka skrifaði kl. 12:24
fimmtudaginn 24. mars 2005
|
|
Það að þú finnir ekki fyrir því að það sé loðið breytir því ekki að það ER loðið! Þú ert ógeð Birgúrka! Ógeð segi ég!
|
Öddi skrifaði kl. 14:19
fimmtudaginn 24. mars 2005
|
|
I agree!
|
Samantha skrifaði kl. 17:42
fimmtudaginn 24. mars 2005
|
|
I agree that you just can't ignore the fur. I don't agree that you are disgusting. I am sure you are very nice. I hope you read english.
|
Samantha skrifaði kl. 17:13
laugardaginn 26. mars 2005
|
|
Já þetta er skrítið með þessa ávexti og þessi grænmeti. Einu sinni fannst mér algjör viðbjóður að borða papriku í nesti, en svo prófaði ég að bíta í papriku og það var mjög ferskt. Svo prófaði ég einu sinni að borða Kiwi-hýði og það var líka bara fínt, maður þarf bara að tyggja það vel.
|
Bó skrifaði kl. 19:51
laugardaginn 26. mars 2005
|
|
Ég man þegar ég sá Söru bekkjarsystur mína með papriku í nesti. Ég horfði á hana eins og hún væri þroskaheft. How little I knew.
|
Öddi skrifaði kl. 04:59
sunnudaginn 27. mars 2005
|
Það er loðið, já, en hverju breytir það??
Loðið er gott... hvers vegna heldurðu að karlmenn séu loðnir..?? -Því það er gott.... :) já, það er aldrei nóg af hárum, segi ég... því loðnara því betra, það er mitt mottó.... ;P
|
Birgitta skrifaði kl. 12:02
sunnudaginn 27. mars 2005
|
|
Þú ættir að kenna henni frænku henni eitt eða tvennt.
|
Frikki skrifaði kl. 15:27
sunnudaginn 27. mars 2005
|
|
Þinni. Frænku þinni, god damn it...
|
Frikki skrifaði kl. 15:27
sunnudaginn 27. mars 2005
|
Ég hef bara aldrei komist yfir það að hann faðir minn kallaði þetta alltaf kenguru punga,
það einhvernveginn skemmdi það fyrir mér.
|
Valur, í borg rassriðla skrifaði kl. 10:21
mánudaginn 28. mars 2005
|
|
Frikki... Öddi er ástæðan fyrir því að ég er svona! Ég kom lítil og saklaus sveitastelpa frá Bolungarvík í bæinn, og lék mér með Ödda og Tinnu og þú sérð sjálfur hvernig það fór... Ég er skemmd... ég meina, ég borða meira að segja kiwi með hýðinu...
|
Birgitta skrifaði kl. 19:36
miðvikudaginn 30. mars 2005
|
|
|