Örninn
orn.arnarson.net

:: grüß gott ::
Þú eignast hamar, og allt breytist í nagla.
-- hhg (2004)
Blogglinkar:
  Benni bróðir
  Valli brói
  Tinna systir
  Frikki
  Sæunn
  Íris frænka
  Bósablogg
  Jósablogg
  M@i
  Einar
  Sóli Hólm

Afþreying:
  b2.is
  tilveran.is
  baggalutur.is
  kvikmyndir.is
  kvikmyndir.com
  imdb.com
  maddox

Hús meistarans:
  Tímavélin
  Senda mér póst
Was ist los?
Löööngu tímabær færsla. Ok... here's the lowdown:

Ég er að vinna hjá Hive, eins og flest ykkar vita sennilega. Lífið þar gengur sinn vanagang.
Ég sótti um í tónlistarskóla í Bretlandi fyrir tæpum tveimur vikum og bíð svars frá honum. Þetta er Academy of Contemporary Music, fyrir þá sem hafa áhuga. Ég er mjög spenntur fyrir þessum skóla og vona að ég komist inn. Ég sótti um í eins árs gítarnám fyrir þá sem hafa ekki formlega tónlistarmenntun.

Annað... hvað annað.... eeehhh.... Já! Ég er skuldlaus... Heyr heyr fyrir því. Kannski Benedikt bróðir minn sýni mér völd sín sem nýskipaður flugstjóri og bjóði mér til New York? Aldrei að vita! Hann hefur nú ætlað að gera það í nokkur ár! :)

Ummm..... já! Þessi færsla er nota bene undir áhrifum frá Eddie Izzard, en ég fór einmitt á uppistandið með honum um daginn. Hann er með mikinn svona "uhhh... hvað nú..." stíl. Ég átta mig á því að þetta getur verið þreytandi til lengdar í skrifum svo þetta er ekki komið til að vera. Uppistandið hans var þó snilld með meiru.

Hefur einhver ykkar horft á Black Books? Ég er nokkuð viss um að þetta eru með skemmtilegri þáttum sem hafa verið í sjónvarpi. Þeir skipa sér sess með meistaraþáttum sem "The Office" og "Scrubs". Ekki amalegt það. Mæli með því að allir sem geti kíki á þá. Það verður enginn svikinn af því.

Nú þegar ég er orðinn skuldlaus finn ég aftur til þarfarinnar að steypa mér í skuldir. Mig langar gríðarlega mikið að fara, eins og áður sagði, til útlanda, t.d. New York. Þetta er þó ekki einungis skorðað við Bandaríkin, þar sem ég væri mjög svo til í að kíkja þó ekki væri nema í helgarferð til Bretlands. Það er bara svo þreytandi að vera alltaf í sama umhverfi, þar sem er sífellt vont veður. Gaman að fara í nýtt umhverfi þar sem er sífellt vont veður :-)

Allavega, læt þetta duga í bili... kannski ég fari að skrifa hér oftar í framtíðinni. Annars er þetta algjörlega búið að missa tilgang sinn.
Öddi skrifaði kl. 23:40
fimmtudaginn 17. mars 2005

permanent url
aftur á aðalsíðu
Umræða
You type more interesting stuff here than on www.arnarson.net... shame on you! You think I can't understand Icelandic, so you can shut me out????!!

Samanða skrifaði kl. 09:28
laugardaginn 19. mars 2005

Du bist mein einige Gast! Glückwunsch!

Öddi skrifaði kl. 16:33
laugardaginn 19. mars 2005

Wo bist du mein ganzes Leben gewesen?

Samanða skrifaði kl. 17:28
laugardaginn 19. mars 2005

Tilgangslaus skrif??!! Hvað meinarðu... þú og þínar pælingar gefa lífinu lit... ekki hætta!

Birgúrka skrifaði kl. 22:15
laugardaginn 19. mars 2005

jæja, loksins sérð þú snilld svöru bókarinnar!!
kútur, ég blóta þér á þýsku! tala á móti á íslensku.

Valur, í borg rassriðla skrifaði kl. 11:51
sunnudaginn 20. mars 2005

Nafn
Texti
 
Ertu glöð og vel upplýst manneskja með lífsfyllingu? Reyndu að dreifa hamingjunni og þekkingunni til þeirra sem útlistaðir eru hér að neðan svo líf okkar allra batni vonandi.



















Veistu um einhvern sem ætti heima á þessum lista?
Sendu mér skilaboð