Örninn
orn.arnarson.net

:: grüß gott ::
Þú eignast hamar, og allt breytist í nagla.
-- hhg (2004)
Blogglinkar:
  Benni bróðir
  Valli brói
  Tinna systir
  Frikki
  Sæunn
  Íris frænka
  Bósablogg
  Jósablogg
  M@i
  Einar
  Sóli Hólm

Afþreying:
  b2.is
  tilveran.is
  baggalutur.is
  kvikmyndir.is
  kvikmyndir.com
  imdb.com
  maddox

Hús meistarans:
  Tímavélin
  Senda mér póst
Aldurinn segir snemma til sín
Nú þegar maður er kominn á þrítugsaldurinn er maður farinn að finna fyrir Manninum með ljáinn læðupokast við næsta horn. Reyndar er alveg jafnlíklegt að þetta sem ég er að tala um sé einfaldlega afleiðing vítamínskorts og heilsuleysis, en ég hef jú vart hreyft á mér rassinn síðan ég kom heim frá Þýskalandi.

Nú kemur varla upp sú kvöldstund að ég verði ekki sjúklega þreyttur í kringum hálfníuleytið. Núna, til dæmis, er ég í vinnunni, og mig hreinlega svíður í augun af þreytu. Ég þakka hreinlega fyrir að geta skrifað blindandi. Þó fór ég ekki á fætur fyrr en klukkan níu í morgun eftir um 11 tíma svefn. Ég sofnaði nefnilega upp úr hálf níu í gærkvöldi, vaknaði síðan um 7, vakti í klukkutíma, var svo þreyttur að ég lagði mig aftur í hálftíma. Með öllum vaknipásum hafa þetta sennilega verið um 11 tímar. Það er mjög mikið fyrir mig. Ég sef vanalega ekki í nema um 6-8 tíma, og get þá ekki sofið meira. Nú hef ég verið svona þreyttur ítrekað í um tvær vikur. Þetta er farið að vera til vandræða, því ég ætlaði t.a.m. í gær að hitta frændsystkini mín áður en þau fara aftur til úgglanda. Þetta hlýtur að vera ellin. Ég neita að trúa því að hreyfing og heilsa valdi svona miklu. Það er gagnstætt mínum trúarbrögðum.

E.t.v. mun ég þó prófa að hreyfa á mér rassinn, ef þreytan eykst. Það verður þó notað sem örþrifaráð. Ég segi það og skrifa!
Öddi skrifaði kl. 20:55
mánudaginn 14. febrúar 2005

permanent url
aftur á aðalsíðu
Umræða
Nei, þetta hefur örugglega ekkert að gera með hreyfingu og hollt mataræði. Þú þarft bara að sofa svona mikið af því að það er svo mikið af þér og það er bara gott að hafa mikið af þér, þar sem þú ert svo frábær ;)

Mamma skrifaði kl. 23:09
mánudaginn 14. febrúar 2005

*HÓSTHÓST*!!!
Pottþétt það!!! POTTÞÉTT! ;)

Tinna skrifaði kl. 19:01
þriðjudaginn 15. febrúar 2005

Öddi minn þetta með aukna svefnþörf hljómar frekar eins og eitthvað sem tengt er við unglinga en það að aldurinn færist yfir. Ég veit að ég (gamla konan) sef alltaf minna og minna, ég veðja samt á að hvorugt eigi sök á heldur held ég að þetta sé bara uppsöfnuð þreyta og kannski vítamínskortur. Þú ert algert æði, ég hef ákveðið að boða fagnaðarerindið í töfluformi, en mér sýnist að það sé það sem fólki líkar best ef lausnin fæst með því að taka eina eða tvær töflur, vítamínskortur er bara inn.

Idda skrifaði kl. 23:31
fimmtudaginn 17. febrúar 2005

Ég held þetta sé bara augnþreyta nú þegar ég hugsa betur um það. Ég horfi svo mikið á tölvuskjáinn á dag nú þegar ég vinn fyrir framn tölvu allan daginn. Bölvuðu aumingjaaugu!

Öddi skrifaði kl. 11:57
föstudaginn 18. febrúar 2005

Sælir frændi, hurru, helix@simnet.is, msn-ið mitt gaur...addaðu mér og láttu Val fá þetta líka, væri gamann að heyra í ykkur af og til.

Ps.
Þetta með síþreytuna....mín reynsla af þessu málum er bara að drekka eina matskeið af lýsi eins og afi kenndi mér hérna í denn og spila nógu helvíti mikið golf. Þú byrjar bara að koma með mér í æfingabásana í vetur og ég skal kenna þér ( mar er nú þrefaldur meistari) og við verðum flottir í sumar.

Mkv. Ófeigur Austmann Gústafsson
(það var nýlega vísindalega sannað að ég er frábær )

Ófeigur Austmann skrifaði kl. 13:25
föstudaginn 18. febrúar 2005

Nafn
Texti
 
Ertu glöð og vel upplýst manneskja með lífsfyllingu? Reyndu að dreifa hamingjunni og þekkingunni til þeirra sem útlistaðir eru hér að neðan svo líf okkar allra batni vonandi.



















Veistu um einhvern sem ætti heima á þessum lista?
Sendu mér skilaboð