Jájájá! Express in the house!
|
Iceland Express bætir við áfangastað á morgun. Þeir munu fljúga til Frankfurt þrisvar í viku fyrir 7000 krónur aðra leið án skatta. Þvílík endemis snilld. Ég fagna þessu framtaki! Vonandi mun þetta fyrirtæki halda áfram að vaxa og dafna svo Icelandair hætti að nauðga okkur. Mér finnst bara illa gert t.d. að rukka meira fyrir þá sem fljúga fram og til baka til áfangastaðar í Bandaríkjunum heldur en það kostar að fara frá sama stað í Bandaríkjunum fram og til baka til Íslands. Næstum því tvöfalt meira. Skamm skamm. Ég vildi miklu frekar að þeir fækkuðu flugum til að þeir gætu lækkað verðið, eða slepptu mat eða eitthvað. Mér finnst skammarlegt að það skipti máli í hvora áttina þú ert að fara.
Annars er ekkert að frétta. Ég sit hér á stuttermabol í táfýlusokkum svarandi í símann og líkar bara ágætlega. Það er orðið frekar rólegt núna, m.v. síðustu 2 vikur allavega. Ég kvarta ekki yfir því. Þá get ég dúllað mér við þá hluti á netinu sem ég myndi öðrum kosti dúlla mér við heima. Ekki amalegt það.
Ég hafði hug á því að skipta um blogkerfi og fara í sama kerfi og Tinna systir er farin að nota, en ég er ekki enn viss. Kannski ég geri það á endanum, en ég nenni bara ekki að fást við það strax. Það er leiðinleg handavinna. Boosjaka. Best að hætta þessu svo ég geti svarað í símann.
|
Öddi skrifaði kl. 15:00
miðvikudaginn 2. febrúar 2005
permanent url
aftur á aðalsíðu
|
Umræða
Hvað hefurðu á móti flugum?
AHAHAHAHAHAHAHAHAH!!!
|
Frikki skrifaði kl. 14:13
föstudaginn 4. febrúar 2005
|
|
Iceland Express fékk tugi- eða hundruðiþúsunda króna sekt á sig fyrir að auglýsa verðin án skatta. Vona að þetta muni ekki hækka fargjöldin þeirra.
|
Árný skrifaði kl. 21:10
mánudaginn 7. febrúar 2005
|
|
|